It's nothing personal, It's just business!

what happens in here stays in here!

10.05.2007 11:48:09 / vignir

Ný síða

www.vigniro.blog.is

 

Hendi kannski hérna inn einhverjum færslum


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.05.2007 19:41:28 / vignir

Betra er seint en aldrei

Hvað haldið að hafa beðið mín liggjandi makindalega í póstkassanum þegar ég kom úr vinnunni í dag? Enginn annar en sjálfur aukennislykill frá Kaupþingi. Ég komst nú alveg af ágætlega án hans hjálpar. Það eina sem hann gerir er að eyða tíma mínum í óþarfa. Vissulega er þetta öryggi að hafa hann, ekki er hægt að kvarta undan því. Mér finnst það samt frekar skrítið afhverju ég fékk hann ekki fyrr.....því nú nota ég heimabankan talsvert. Veit ekki alveg eftir hverju er farið þegar honum er deilt út. Nú þyngist lykklakippan..........frábært..........og ekki eins og þessi lykill sé eitthvað augnayndi að auki. Afhverju gátu þeir ekki haft þetta í nokkrum útfærslum, og mundi gefa manni val á því hvernig nýji vinsæli fylgihlutrinn mundi líta út.....Ég bara spyr...

» 1 hafa sagt sína skoðun

09.05.2007 15:46:36 / vignir

Göngugarpur

Gerði svolítið í gærkvöldi sem að ég hef ekki gert áður. Þannig er mál með vexti að ég og Guðrún vorum á rútntinum. Ég keyrði út fyrir bæinn að Hveragerði. Fyrir þá sem þekka þá leið er hóll, Kögunarhóll heitir hann. Þar sem ég hafði aldrei prílað upp hann lagði ég þá bón fyrir nefn og var hún samþykkt. Á blank skóm arkaði ég þarna upp með Guðrúnu. Ferðin tók ekkert svakalega á og náðum við að fara upp á ca 6 mín, með rólegu rölti. Útsýnið er mjög flott þarna upp og maður sér vel bæði Selfoss, Hveragerði og nærliggjandi sveitabæi.

Greinileg merki um mannaferðir má sjá þarna uppi því búið er að búa til tvær vörður og þar sem ég er frekar hjátrúaflullur þorði ég ekki öðru en að henda steini í sitthvora vörðuna. Við sáum að hestar hafa farið áleiðis upp en ekki alveg alla leið. Ætli hestar séu lofthræddir?


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.05.2007 13:01:44 / vignir

Vangaveltur

Hef verið að velta því fyrir mér hvort ég eigi að skipta um svæði til að blogga á......Hvað er svona það sem er að virka best í dag? Er búinn að vera að pæla í nota morgunblaðsbloggið...


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.05.2007 10:34:47 / vignir

Hellisheiðin

 

Hef oftar en einu sinni, á ferð minni yfir heiðina háu, séð bíl sem skilinn hefur verið eftir í vegkantinum. Ofast eru þetta bílar sem virðast vera druslur eða nýlegir bílar sem farið hafa útaf. Nánast undantekningalaust er einhver rúða, jafnvel allar, mölvaðar. Hauspúðum stolið, sem kostar slatta að endurnýja. Getur fólk ekki séð neitt í friði á þessum slóðum ? Ætli þetta séu sömu einstaklingarnir sem leggjast svo lágt að skemma eigur annarra?


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.05.2007 16:28:25 / vignir

Evróvisjon

Fer varla framhjá nokkrum manni að þessi margrómaða keppni evróvisjon, sem einkennist af vafasamri tónlist og mis góðum atriðium. Allir halda að þeir séu með besta lagið og sjóið. Svo er það magnað, t.d þegar Ruslana vann með allar sínar stóru trommur voru þær ferkar vinsælar árið eftir....magnað....

Ég verð nú að segja það af þeim lögum sem er að keppa er nú íslenska lagið með þeim betri. Ég vil að þið takið sérstaklega eftir laginu frá Úkraínu, þar er á ferð atriði sem ég gat ekki hætt að hlæja að! En af þessum lögum sem að ég hef séð held ég að Rússland eigi eftir að ná frekar langt með sitt fjöruga lag...

Í fyrsta skipti á ævi minni er ég að vinna um kvöldið þegar forkeppnin er. En þar sem Síminn er vel tækjum búinn eru hér mörg sjónvörp og tölvur til að horfa á þetta allt saman. Á ekki von á að það verði neitt brjálæðislega mikið að gera til 9 um kvöldið....


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.05.2007 20:46:43 / vignir

Hitt og þetta


Í heiminum í dag eru skriljarðar af örbylgjum sem að þjóta um hausana á okkur á hverjum degi. Þessar bylgjur flytja auðvita útvarp, sjóvarpssendingar gsm og fleirra. Þessar bylgjur eru ekki eitthvað sem við sjáum ekki og erum ekki meðvituð um dagsdaglega. Ég held að enginn vita hvort þær séu skaðlegar.
Yfir í annað...

Hversu mörg lög ætli hafi verið samin í heiminum og hvað ætli sé spilað mikið af því í útvarpi og sjónvarpi? Aldrei á maður eftir að heyra öll lög sem eru í spilun! Margir eru að reyna að koma sér á framfæri, kannski alla sína æfi og ná aldrei til eyrna okkar.
Mörg þessara nýju laga eru mjög keimlík, endurgerðir af gömlu lögum og fleirra. Það er ekki endalaust hægt að semja ný lög sem eru gjörsamlega ólík öllu öðru. Reyndar hefur Björk farið ótroðnar slóðir og má þá helst nefna plötuna Medulla þar sem engin hljóðfæri voru notuð heldur var stuðst við mannsröddina. Hún tók einmitt eitt lag af þeirri plötu á tónleikunum, sem voru silldin ein, það var mjög flott hvernig það var útsett með blásturshljóðfærum.

Fáir eru að reyna að gera eitthvað örðuvísi sem veldur því að nútíma tónlist er frekar einsleit og misgóð. Mér finnst það samt magnað að listamenn eins og 50cent og Usher eru með þeim söluhæstu í bransanum, hvað varðar plötusölu. Gamlir refir eins og Michael jackson, Credence Clearwater Revival og Madonnu. Veit ekki allveg hvað þau lög eldist eins vel, sé mig ekki fyrir mér vera að hlusta á 50cent á elliheimilinu...eða eitthvað af þessu RnB, MissyElliot og fleirri :) En hver veit...

Holdið er líka mjög áberandi í tónlistabransanum..........og kannski venjulegt........Hugsa að það mundi vekja althygli ef að allar stelpur í myndböndum væru kappklæddar í þjóðbúninga með öllu tilheyrandi, eða í íþróttafötum....Sjálfur hef ég ekkert á móti þessu eins og þetta er núna :)
Annað mál.........
Nú fara kosningarnar að ganga í garð og smeðjuleg andlit frambjóðanda sjást nú enn meir. Þeir keppast um að hella guðaveigum í þyrstan lýðinn og fylla þá með búsi og fögrum loforðum sem fara svo fyrir ofangarð og neðan. Svaraði einhverjum spurningum sem að ég rakst á. Útkoman var sú, miðað það sem ég valdi beindist það að hinum nýja flokki Íslandshreyfingunni. Veit ekki allveg hvort að ég mundi kjósa hann.....Eitt er samt víst og það er að ég mun mæta á kjörstað og kjósa. Hvað sem það nú verður.....Mér líður alltaf hálf kjánalega, í þessi tvö skipti sem að ég hef kosið, maður er beðinn um skylríki (sem er eðlilegt) og þau skoðuð í hörgul. Svo er litið á mann og manni skipað að fara i kjörklefan. Mér finnst það mjög fyndið að fólk fær að fara í littlum hópum inn í herbergið þar sem alsherjardómur situr og býður eftir að maður veifi þeim.
Svo finnst mér það svo mikil klysja þegar það er sýndar myndir af frambjóðendum setja sitt atkvæði í kassann, þeir brosa eins og þeir sé að í prufu fyrir tannkremsauglýsingu, og hvað ætli þeir kjósi? Eru örugglega að kjósa sjálfa sig, sem mér finnst frekar fyndið!
Ég get ekki annað en dáðst af þessu fólki sem að nennir að selja sig og sálu sína fyrir örfá atvkæði og fá að vinna á einum leiðinlegasta vinnustað á Íslandi! Sitjandi undir þrumu ræðum frá Steingrími og fleirrum mönnum/konum sem þurfa að tjá sig mikið.

Annað.....

Frakklandsforsetakosningarnar eru nú loksins yfirstaðnar. Ég verð nú að segja að ég hefði vilja sá Segolene Royal sem forseta. Efast nú samt ekkert um að Nicolas Sarkozy eigi ekki eftir að pluma sig með stökustu prýði.

Nú, forseti vor er víst kominn heim af sjúkrahúsi efti að hafa verið fluttur með þyrlu á sjúkrahús, þar sem voru framkvæmdar miklar rannskóknir sem leiddu það eitt í ljós að hann væri nú bara frekar brattur........held bara að hann hafi verið að sækjast eftir smá athygli, því hann er ekki búinn að vera eins áberandi eins og hann var á tímabili.

Annað..........

Styttist nú all svakalega í utanlandsferðina góðu. Djöfull hlakka ég til að fara. Steini og Linda voru að eitthvað að ýja að því hvort ég ætlaði ekki að bæta við einni viku en ég veit ekki hvað verður af því, held samt ekki....
Herbergjaskipanin er ekki alveg áhveðin en ég held að ég verði í herbergi með honum Gauja.


En hvernig væri nú að setja hérna punkt? er það ekki tilvalið?
Ætla að láta þetta duga í bili.


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.05.2007 11:57:20 / vignir

15. Þáttur

 Við höldum áfram þar sem frá var horfið....

,,Nei, veistu Stefán.......ég komin með nóg af þessum ferðalögum. Geðheilsan mín þolir ekki mikið meir. Skutlaðu mér í gymmið, þarf aðeins að fá smá útrás á boxpúðanum''.

Hjúin kláruðu morgunnmatinn og héldu af stað út í umferðina.

,,Afhverju eigum við þennan bíl?'' spurði Ragnheiður með leinlegum tón. ,,Þetta er bara stöðutákn fyrir mig elskan, og svo sú staðreynd að vinir mínir eru grænir af öfund'' svarði Stefán um hæl og virtist ekki pirrast yfir þessari spurningu frúarinn um eðal bifreið sína, Atston Martin.

,,Hleyptu mér bara út hérna, hef gott af því að ganga.'' Úti var enn sólskyn og Ragnheiður fann að hún komst í einhvern fíling. Hún var extra duglega í gymminu og svitnaði eins og svín. Eftir stranga æfingu fór hún í búiningsklefan og fór í sturtu. Með henni í sturtunni voru tvær eldri konur sem voru komnar með mikið af hrukkum og voru ekki fitt. Svona ætla ég ekki að verð hugsaði hún þegar hún sápað stælta líkama sinn. Hún skrúfaði frá sturtunni, þurkaði sér og fór að skápnum sínum. Hún tók eftir því að baðvörðurinn fylgdist með sér og fílaði það ekki, að láta kvennmann stara á sig nakta. Ragnheiður tók eftir því að brjóstahaldarinn var ekki í skápnum og fór hún að leita að honum. Eftir stutta leit fann hún loks brjóstahaldarann í plastkörfu hjá hárþurkunni. Honum hafði verið vöðlað sama og búið var að koma fyrir miða í honum. Ragnheiður ákvað að bíða með að lesa miðann þangað til að hún kæmi heim. Hún hringdi í Stefán sem sótti hana.

 Hvað stendur á miðanum ? Er baðvörðurinn samkynhneigður ? Mun Ragnheiður fá sér smoothie?


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.05.2007 12:02:03 / vignir

Stutt og snaggaralegt

Margt nú til dags er skammstafað, hér ætla ég að fara yfir hvað þær standa fyrir. Þetta er auðvita ekki tæmandi listi en vona að þú verðir einhvers vísari....

C I A - Centarl Intelligence Agency

C S I - Crime Scene Investigation

V I P - Very Important Persone

D A S - Dvalarheimili Aldraðra Sjómanna

B S R - Bifreiðastöð Reykjavíkur

E E S - Evrópska EfnahagsSvæðið

Síbs - Samband íslenskra berkla- og brjóstholssjúklinga

M I T - Massachusetts Institute of Techonlogy

O E C D - Organistation for Economic Co-operation and Development

i H O P - t.d International House of Pancakes eða International House of Prayer

F B I - Federal Bureau of Investigation

EVOO - Extra Virgin olive oil

H S K - Hérðassambandið Skaphéðinn

ADSL - Asymmetric Digital Subscriber Line

VOD - Video on Demand

GPRS - General Packet Radio Service

GSM - Global System for Mobile Communications

Voip - Voice over Ip ip - Internet telephony

ISDN - Intergrated Services Digital Network

BBC - The British Broadcasting Corporation

IQ - Intelligence quotien

ER - Emergency room

ICU - Intensive Care

ASAP - As Soon As Possible

Hef þetta ekki lengra núna,gæti haldið áfram endalaust held ég...En ef að þú ert með einhverja skammstöfun sem ekki er á listandum,máttu alveg koma henni á framfæri.


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.05.2007 10:38:44 / vignir

Ég held...

 

Að  Condoleezza Rice sé geimvera.....

....


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.05.2007 18:45:46 / vignir

Sumir hlæja haha, aðrir hlæja híhí

Mér finnst það mjög fyndið þegar..........

- ég sé fólk éta undir stýri, það verður alltaf eitthvað svo græðgislegt

- ég sé fólk syngja með útvarpinu í bílnum, sérstaklega ef að það er að fíla sig all svaðalega

- Viðskiptavinur leikur fyrir mig hljóð þegar eitthvað bilar, kannski í sambandi við Skjáinn

- fuglar berjast í bökkum með að flúga í miklum vind!

- Kettir setja upp krippu og hvæsa

- fólk mismælir sig mjög illa

- Einhver segir lélegan brandara sem á að vera sá besti


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.04.2007 10:23:23 / vignir

Átak smátak

Þau geta nú verið af ýmsum toga sem ætla nú ekkert að fara að tíunda hér neitt. Þannig er mál með vexti að fyrirtæki eru stöðugt að brydda upp á einhverju og nú er það átakið ,,hjólað í vinnuna,, hahahahaha.......Ef að ég ætti að taka þátt í þessu mundi ég líklegast þurfa að leggja af stað á mjög ókristilegum tíma eða svona um 4-5 um morguninn! Jafnvel yrði það ekki nóg! En þar sem blikkbeljan mín virkar mjög vel og kemur mér hratt og örugglega frá A til B læt ég hana duga. Kannski einhverntíma í sumar mun ég láta verða af því að hjóla til Reykjavíkur....efast samt....En ef að einhver er nógu geðveikur til að hjóla með mér má hann hafa samband!


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.04.2007 08:34:41 / vignir

Óheppileg þýðingarvilla (tekið af visir.is)


Doris Moore, sem býr í Kanada var heldur brugðið þegar hún fékk nýja sófann sinn sendan heim. Sófinn var dökkbrúnn og fallegur, og í fyrstu var hún alsæl. Það fór þó af þegar hún sá litamiðann þar sem liturinn á sófanum var tiltekinn. Á honum stóð; "Nigger brown."

Doris, sem sjálf er svört, kvartaði við húsgagnaverslunina sem hún keypti sófann af. Verslunin benti á innflytjandann, sem benti á verksmiðjuna, sem benti á tölvufyrirtæki sem útbjó merkimiðann.

Það tölvufyrirtæki er í Kína. Það notaði gamla orðabók til þess að fóðra þýðingartölvu sína á. Og þegar slegið var inn "dökkbrúnn" á kínversku letri, kom út þýðingin; "Nigger brown."

» 0 hafa sagt sína skoðun

19.04.2007 16:10:06 / vignir

Og það er komið sumar :)

Loksins loksins er sumarið formlega komið! Vetur og sumar frusu saman sem á víst að boða frábært sumar samkvæmt okkar hjátrú. Allt gott með það, jájá.

Ég ætla að reyna að nýta þetta sumar sem best, nota frídagana í botn í útlilegur og annað. Ekki má svo gleyma litlu utanlandsferðinni minni! Sem auðvita verður snilldin ein!

Nú, ég mun hitta slatta af ættingjum í sumar, þar sem ég er að fara í á eitt stk. ættarmót. Það verður örugglega jafn skemmtilegt og að horfa á málingu þorna....nei ég segi nú bara svona! Ættarmót eru auðvita það svalast sem að maður kemst í......eða.......

En já, sumarið komið og tóm gleði framundan.


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.04.2007 19:44:36 / vignir

Benzín







Hvernig væri að lækka bensínlíterinn niður í sama verð og mjólkurlíterinn, kaupir fólk ekki mest af þessu?

jah, ég bara spyr




» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7
Klukkan